Miðvikudagur, 13. júní 2007
Óvissuferðin á föstudaginn
Aðeins hefur bæst við dagskrána þann 15. júní. Við mætum í skólaheimsókn til Jóns Más skólameistara kl 12:00. Strax á eftir verður myndataka af hópnum í Stefánslundi og kl 13:00 leggjum við af stað í óvissuferðina. Mætum öll með góða skapið og höfum gaman saman!!
Föstudagurinn verður sem sagt svona:
Mæting kl. 12.00 í aðalanddyri MA (við bláturninn komið að vestan, hjá heimavist)
Heimsókn undir handleiðslu Jóns Más skólameistara
Myndataka í Stefánslundi
Brottför um kl. 13.00
Ferðinni heitið út í óvissuna
Heimkoma óviss
Eitthvert nesti og sýnishorn af drykkjarföngum svo og aðgöngumiðar ýmiss konar eru inni í gjaldinu en sumir vilja eflaust meira nesti og er sjálfsagt að hver og einn beri með sér ölföng við hæfi. Munið viðeigandi föt og sundföt, dansskó, góða skapið, sólgleraugu, diska með eitístónlist og fleira sem ykkur dettur í hug.
Sjáumst svo eldhress!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.