Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
Þriðjudagur, 10. apríl 2007
"A table for sex, plís" - annar hluti
Dísa víóla kom upp um sig sjálf með athugasemd í gestabókinni. Hér er svo myndin - Úlli fararstjóri, Ólöf, Dísa, Sólveig, Íris og Inga Halla. Ég geri ráð fyrir því að þjónninn sé sá sem sem tók við pöntuninni um borðið. Vona að hann hafi ekki skilið ensku. Takið eftir slaufunni, mér sýnist þetta vera sú sem ég var með á fermingardaginn. Og takið eftir því - kannski ósköp venjuleg tilviljun - að lang stærsta flaskan á borðinu er fyrir framan Dísu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. apríl 2007
"A table for sex, plís"
Staðurinn er Krít, þetta er haustið 1981. Lífsglöð stúlka frá litlum bæ við fallegan fjörð á Íslandi segir við saklausan þjón á veitingastað eitt kvöldið: "A table for sex, plís". Hvað stúlku dettur svona lagað í hug? Koma margar til greina? Ég held ekki.
Engin verðlaun eru veitt fyrir rétt svar við spurningunni en við hæfi að taka fram strax að umræddur víóluleikari var ekki í máladeild... Mynd af sexmenningum (!) verður birt hér innan tíðar. Umsjónarmaður síðunnar og Íris Ingvarsdóttir flettu nefnilega í morgun nokkrum myndaalbúmum Írisar frá því í den tid og eftir ítarlega ritskoðun voru fáeinar myndir úrskurðaðar birtingarhæfar og skannaðar á tölvutækt form.
Myndum úr safni Írisar verður skellt hér inn á síðuna á næstu dögum og enn skal ítrekuð hvatning til ykkar allra um að leita að gömlum myndum og senda ykkar einlægum.
MA1982 síðan er sem sagt vöknuð til lífsins á ný. Nú verður ekki aftur snúið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)