Föstudagur, 2. mars 2007
Allt er breytingum háð
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Þar sem sum ykkar eru orðin nokkuð roskin er rétt að byrja að hamra á því strax að EKKI þýðir að gera tilraun til þess að ganga inn í Gamla skóla þar sem þið voruð vön í den tid.
Dyrnar vestanmegin inn í kjallarann eru jafnvel ekki til lengur og þær í norðaustur horninu, sem snéru þá að kaffiteríu KEA, eru harðlæstar núorðið, amk alla jafna. Kannski eru þær ólæstar þegar gamalt, vanafast fólk heimsækir skólann sinn í hópum, ég veit það ekki, en þar sem ég hugðist skoða einkunnir mínar í vikunni - sem ég gerði fastlega ráð fyrir að héngju enn á veggnum fyrir ofan tröppurnar - var harðlæst.
Nú er gengið inn í MA vistarmegin, inn í Hóla sem ... Ja, þeir sem ekki vita komast að því hvað Hólar eru, þegar nær dregur hátíðinni miklu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.