Þriðjudagur, 6. mars 2007
Hver fær fyrsta dansinn?
Svana Birgis stefnir greinilega á að fá fyrsta dansinn við ritstjórann. Hún skrifar hvað eftir annað í gestabókina - sjá "Gestabók" vinstra megin á síðunni... Verst að Svana verður ekki á landinu 16. júní. Eða var það ekki 16. júní sem ég lofaði að veita verðlaunin? Man það ekki í svipinn.
Svo er það spurning hvort það er tíundi hver sem skrifar, sem fær dans, eða sá sem skrifar tíundu hverja færslu. Vona a.m.k. að Svana skrifa næstu færslu frekar en t.d. Stebbi Sæm, með fullri virðingu fyrir Stebba - ef úrskurðað verður á þann veg að ritari tíundu hvers pistils í gestabókina fái að dansa við ritstjórann. En það fer auðvitað eftir því hvað ritstjórinn telur sér í hag hverjar reglurnar verða, enda hann dómari í þessu máli.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.