Miðvikudagur, 9. maí 2007
Þyrnirós vöknuð
Ritstjórinn er kominn í leitirnar. Jibbí!
Árgangurinn er að vakna, sýnist mér enda aðeins rúmur mánuður til stefnu. Líf færist í gestabókina á ný og einhverjir virðast sakna undirritaðs. Þar sem það hefur ekki gerst lengi er ekki annað hægt en bregðast við. Lofa því að halda áfram að bulla eitthvað hér á síðunni og setja inn myndirnar frá Írisi. Þær eru bráðskemmtilegar, margar hverjar.
Hvet fleiri til að senda mér myndir og pistla. Allir geta skrifað í gestabókina - reyndar var kvartað yfir því við mig um daginn að hún virtist lokuð öllum nema máladeildinni og Dísu víólu! Svo á alls ekki að vera. Ef einhver er í vandræðum með að komast þar inn endilega látið mig vita - skapti@mbl.is og vilji menn skrifa pistil til birtingar hér á síðunni sjálfri forsíðunni endilega sendið mér þau skrif.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.