Miðvikudagur, 9. maí 2007
Ógleymanlegur fróðleikur
Margir einstaklega áhugaverðir fyrirlestrar voru í boði á Krít haustið 81 og fróðleiksþyrstir MA-ingar hlýddu jafnan á með aðdáunarverðri athygli. Þarna er verið að lýsa þróun gróðurfars eyjarinnar frá öndverðu og hrein unun að sjá gleðina og áhugann sem skín úr augum hinna íslensku gesta. Hermt er að Erlingur Jóhannsson muni endursegja fyrirlesturinn að kvöldi 14., 15. og 16. júní næstkomandi. Honum til aðstoðar verður Torfi Fjalar Jónasson.
Reynt var að fá leiðsögumanninn sem heiðursgest í óvissuferðina 15. júní en í ljós kom að konan er öll. Ólöf Jónsdóttir drap hana með augnaráðinu, fáeinum andartökum eftir að myndin var tekin.
Úr skúbbmyndasafni Írisar Ingvarsdóttur.
Athugasemdir
Hvaða rugl er þetta í þér Skapti? Ég sem er alltaf svo ljúf og góð og geri ekki flugu mein. Mótmæli hér með harðlega.
Ólöf
Ólöf Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 18:14
he he - mótmæli ekki tekin til greina.
Stúdentar frá MA 1982, 11.5.2007 kl. 09:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.