Þriðjudagur, 22. maí 2007
Fleiri myndir
Var að bæta slatta af myndum í Albúmið "Við þá" - úr útskriftarferðinni til Krítar, frá Dimmisso og undirbúningi busavígslunnar haustið 1981. Hér er eitt sýnishorn; Sossa og Lalli - Soffía Ófeigsdóttir og Lárus Blöndal - í veislu á Krít. Ég trúi því varla, en sé þó ekki betur en þau séu þarna með hákarlsbita á göfflunum. Er líklega farinn að sjá illa.
Tekið skal fram enn er um að ræða gripi úr fjársjóði Írisar Ingvarsdóttur. Lýsi hér með eftir fleiri myndum annars staðar frá.
Athugasemdir
Þetta mun hafa verið upphafið að deilu Grikkja við aðrar Evrópuþjóðir um að stela bæði hugmyndinni og nafninu að FETA-ostinum. Eitthvað hefur þeim gengið illa í þeirri baráttu og væri upplagt að senda þeim lögfræðinga sem hafa skoðað málið frá öllum hliðum.....
kveðja
Ævar Ísak
Ævar Ísak (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.