Mánudagur, 9. apríl 2007
"A table for sex, plís"
Staðurinn er Krít, þetta er haustið 1981. Lífsglöð stúlka frá litlum bæ við fallegan fjörð á Íslandi segir við saklausan þjón á veitingastað eitt kvöldið: "A table for sex, plís". Hvað stúlku dettur svona lagað í hug? Koma margar til greina? Ég held ekki.
Engin verðlaun eru veitt fyrir rétt svar við spurningunni en við hæfi að taka fram strax að umræddur víóluleikari var ekki í máladeild... Mynd af sexmenningum (!) verður birt hér innan tíðar. Umsjónarmaður síðunnar og Íris Ingvarsdóttir flettu nefnilega í morgun nokkrum myndaalbúmum Írisar frá því í den tid og eftir ítarlega ritskoðun voru fáeinar myndir úrskurðaðar birtingarhæfar og skannaðar á tölvutækt form.
Myndum úr safni Írisar verður skellt hér inn á síðuna á næstu dögum og enn skal ítrekuð hvatning til ykkar allra um að leita að gömlum myndum og senda ykkar einlægum.
MA1982 síðan er sem sagt vöknuð til lífsins á ný. Nú verður ekki aftur snúið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.